Bandvefslosun teygjur og slökun
Um er að ræða rólega tíma þar sem markmið hvers tíma er að auka hreyfifærni, liðleika, minnka vöðvaspennu, draga úr…
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
Námskeið fyrir konur með ADHD hefur göngu sína 3. október. ADHD á kvennamáli er samvinnuverkefni Sigrúnar Jónsdóttur og Kristbjargar Konu sem báðar eru ADHD markþjálfarar og eru báðar greindar með ADHD.
Á námskeiðinu leggjum við grunn að bættu sjálfstrausti og jákvæðri sjálfsmynd með aðferðum ADHD markþjálfunar.
Tilgangur námskeiðisins er að konur eigi farsælla líf bæði í starfi og leik. Við skoðum leiðir sem styrkja konur í allri yfirsýn, framkvæmd og leiðum til að takast á við vinnumarkaðinn og velja sér starf þar sem eiginleikar þeirra geti notið sín. Námskeiðið hefur nýst þeim sem starfa með mannauð og ungmenni sem eru með ADHD.
Við ræðum starfsemi ADHD heilans. Hvernig hann hefur áhrif á getu þína, ákvarðanir og gjörðir og kennum þér einfaldar leiðir til að yfirstíga hindranir og auka sjálfsþekkingu. Við hægjum á, hlúum að og spornum gegn neikvæðum áhrifum álags, streitu og svefnerfiðleika með leiðum sem reynast hjálplegar til að róa taugakerfið m.a með Yoga Nidra.
Sjá nánar.
Um er að ræða rólega tíma þar sem markmið hvers tíma er að auka hreyfifærni, liðleika, minnka vöðvaspennu, draga úr…
Í Yin joga er farið rólega inn í stöðu sem er ávallt gerð liggjandi eða sitjandi og getur því hentað…
Sjálfsstyrkingarnámskeið ætlað konum (hún, kvár/hán með leg, transkonur á kvenhormónum) sem eru á einhverfurófi eða með grun um að vera…
Í tímunum gerum við nærandi æfingar fyrir líkama og huga, lærum öndunaræfingar fyrir fæðinguna og ráð til að takast á…
Mömmujóga – tengslamyndandi námskeið! Í mömmujóga er aðaláherslan á að koma móðurinni í gott líkamlegt og andlegt form með æfingum og…
Hver tími inniheldur öndunaræfingar, mjúkar teygjur fyrir alla vöðvahópa og slökun. Sigrún Steingrímsdóttir jógakennari leiðir tímana. Skráning og upplýsingar [email protected]…
Yoga Nidra er forn hugleiðsluaðferð sem nýtur vaxandi vinsælda í hinum vestræna heimi. Nidra þýðir svefn og er leiðsögn inn…
Heimastyrkur og Míró sameina krafta sína á námskeiðinu. Tilgangur námskeiðsins er að skilja kjarna persónunnar, ólíka hegðun og tegund af…
Að leggjast á dýnuna í öruggu rými, gefa eftir og sleppa tökum og leyfa Írisi að leiða þig inn á…
Hver tími inniheldur öndunaræfingar, mjúkar teygjur fyrir alla vöðvahópa og slökun. Sigrún Steingrímsdóttir jógakennari leiðir tímana. Skráning og upplýsingar [email protected]…