Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
Starfsemi félagsins hefur beinst að réttinda- og hagsmunagæslu fyrir fólk með parkinson, að veita fræðslu og upplýsingar um sjúkdóminn í hinu víðasta samhengi og stuðla að rannsóknum og aukinni þekkingu á sjúkdómnum og meðferðarmöguleikum. Samtökin eru einnig vettvangur fyrir innbyrðis stuðning félagsfólks og halda reglulega félagsfundi og aðra viðburði.
Þjónusta fyrir börn og fullorðna sem hafa upplifað erfiðleika, sorg eða áföll. Boðið er upp á sálgæslu, ráðgjöf, sáttamiðlun og fræðslu, auk námskeiða og skapandi úrvinnslu.
Við erum til staðar fyrir þau sem missa á meðgöngu, í fæðingu og eftir hana. Tilgangur félagsins er að styðja við foreldra og aðstandendur þeirra þegar missir á sér stað. Þetta gerum við til að hjálpa til við að varðveita…