Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Starfsreynsla Kristínar teygir sig yfir breitt svið.  Kristín, sem einnig er menntaður grunnskólakennari, hefur starfað sem sálfræðingur síðan 2006. Hún hefur m.a. starfað sem skólasálfræðingur; í grunnskólum og menntaskóla. Starfað sem sálfræðingur:  Í  Endurhæfingu, á heislugæslu, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra og á geðdeild í Noregi. Þá hefur Kristín rekið eigin stofu á Selfossi frá 2012- 2018, sálfræðingur á höfuðborgarsvæðinu síðan 2018; Á EMDR stofunni  í Kópavogi og á  Klapparstíg í Reykjavík. Einnig hefur hún haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra bæði fyrir börn og fullorðna..Kristín sinnir í dag allri almennri sálfræðiþjónustu fyrir fullorðina.

Helstu meðferðarform:

EMDR – ACT – HAM

Helstu sérsvið:

Áföll, Flókin áföll og hugrofseinkenni. Sorg og missir. Langvarandi verkir. Einhverfa og ADHD, ásamt frávikum í vitsmuna og taugaþroska. Árátta og þráhyggja. Þunglyndi og kvíði.