Sveinbjörg er staðsett í notalegu rými á 1. hæð. Gott aðgengi er að herberginu þar sem hægt er að ganga beint inn á hæðina frá bílastæðinu framan við húsið, Suðurgötu megin og inn um hurð vinstra megin við aðalinngang.
Sveinbjörg er löggiltur heilsunuddari og hefur starfað sem slíkur síðan árið 2018, m.a. í Bláa Lóninu og Hreyfingu Spa. Sveinbjörg sérhæfir sig í djúpvefjanuddi og bandvefslosun ásamt því að bjóða upp á heilsu- og slökunarnudd. Allar meðferðir leggja áherslu á að auka markvisst súrefnisflæði til vöðva, örva blóðrás og losa um bólgur og spennu á tilgreindum svæðum. Unnið er eftir þörfum hvers og eins.
Ef unnið er markvisst með heilsunudd, getur það án efa verið áhrifaríkt, bætt lífsgæði þín, dregið úr streitu og þreytu og veitt góða slökun og vellíðan.
Aðrar þjónustur
Seiglan
Seiglan er þjónustuúrræði fyrir einstaklinga á fyrstu stigum heilabilunarsjúkdóms.
-
- Föstudaga 09:00 - 12:00
Hlöðuloftið – sálfræðistofa
Sálfræðistofa fyrir börn og foreldra. CPS þjálfun fyrir foreldra og ADHD greiningar
Systir photography
Systir photography býður upp á alhliða ljósmyndun
Heilsuefling Siggu Gunnars
Heilsunudd og höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð
Taktur sjúkraþjálfun
Taktur sjúkraþjálfun er stöð sem þjónustar fyrst og fremst fólk með Parkinson og skylda sjúkdóma.